NÝJI SKÁLINN

Verð frá: Kr 34,900 herbergið fyrir nóttina.

Nýji Skálinn er þar sem hjartað slær. Þar er móttakan og veitingahúsið og svo fyrir þá sem dvelja vilja aðeins meira útaf fyrir sig eru í boði einkaherbergi sem hýst geta allt að þrjár manneskjur hvert. Eitt tvíbreitt og eitt einbreitt rúm.

Það er engin eldunaraðstaða í boði í Nýja Skálanum. Baðherbergi með sturtu eru sameiginleg.

Uppábúið rúm og Morgunverður fyrir tvo er innifalið í verði í Nýja Skála. Fyrir þriðja gest kostar aukalega Kr 6400. 

Næturgestum Nýja Skála er frjálst að nota laugina við Gamla Skálann og einnig sturtuaðstöðuna við tjaldsvæðið.