Verð: Kr 2200 á mann nóttin
![](https://hveravellir.is/wp-content/uploads/2022/01/1-600x300-1.jpg)
Fyrir fersku útivistargyðjurnar og garpana sem taka tjaldið fram yfir timbrið bjóðum við upp á rúmgott tjaldsvæði í fögru umhverfi rétt í hraunjaðrinum. Salerni og sturtur eru rétt við hendina sem og borð og bekkir á víð og dreif um svæðið. Gestir á tjaldsvæðinu geta líka hent sér í gömlu laugina þegar þeir vilja. Gestir á tjaldsvæði eru einnig velkomnir á morgunverðarhlaðborðið í veitingasalnum fyrir Kr 2400 á mann.
Aðstaða
Sturtur
Salerni
Gamla laugin