Naut og Bernaise

Naut og Bernaise. Nú ætlum við að elda þessa eðalmjúku nautalund og hella yfir  þeirri gómsætustu Bernaise sósu sem fjöllin hafa séð. En við ætlum að byrja á humarsúpu með sjávarréttaspjóti og hvítlauksbrauði. Það verður svo eitthvað gott í lokin og auðvitað kaffi með því.

Laugardaginn 25 mars ætlum við að blása til veislunnar en svo verður líka í boði að mæta á föstudeginum og aukanóttin með morgunmat verður á sérstöku tilboði. Þeir sem koma á föstudegi verður gefinn morgunmatur og þeir svo reknir út að leika í snjónum fram að kvöldmat.

Veisla og morgunverður.

Verð sem allir ættu að höndla og svo sérstakt glæsitilboð fyrir þá sem vilja aukanóttina á fjöllum.

*Ein nótt tveir í herbergi í Nýja Skála með morgunverði og nautaveislu ISK 23.900 á mann tilboð í tvær nætur m/ morgunverði ISK 28.900

*Ein nótt einn í herbergi Nýja Skála með morgunverði og nautaveislu ISK 34.900 Tilboð í tvær nætur m/ morgunverði ISK 38.900

Upplýsingar og bókanir / Bookings and more informations.

info@hveravellir.is

Pétur s: 6601366

P.S Við munum reyna að hafa milligöngu um að koma mönnum í samflot inn eftir ef áhugi verður fyrir hendi.