Jólahlaðborð 2024

Margir bíða spenntir eftir jólahlaðborði Eyvindar og Höllu enda er það mögulega besta jólahlaðborð landsins –

Laugardaginn 23 Nóvember Laugardaginn 30 Nóvember og Laugardaginn 7 Desember 2023 fer Halla í sinn fínasta upphlut því kræsingarnar kalla á betri fötin. Það verður klárlega ekki síðri stemming en í fyrra. Það verður ekkert til sparað.

Taðreykt hangilæri síld og rúgbrauð, kalkúnn  og purusteik reyktur Lax og jafnvel eitthvað fleira villt úr umhverfinu er meðal þess sem finna má á fjalla-matseðlinum. Allskonar dásemdar meðlæti og eftirréttir svo til að róa hugann.

Ef einhver á jeppa en vill síður ferðast einn á fjöllum að vetri til munum við reyna eftir fremsta megni að skipuleggja samflot eða leiðbeina eftir bestu getu.

Einnig er möguleiki að útvega far fyrir þá sem það vilja. Kostnaður við það kæmi sérstaklega.

Við gefum verðbólgunni langt nef. Sama verð og í fyrra en það má alls ekki segja Ásgeiri frá því.

Lúxus Jólahlaðborð og morgunverður.

Óvísitölureiknað stýrivaxtalaust verð fyrir hlaðborðið og gistingu og svo sérstakt glæsitilboð fyrir þá sem vilja auka nótt á fjöllum.

Ein nótt svefnpokapláss gamla skála með morgunverði og jólahlaðborði ISK 21.900* tilboð í tvær nætur m/morgunmat ISK 26.900*

Eða ein nótt í herbergi með uppábúnu rúmi í Nýja Skála miðað við 2 í herbergi með morgunmat og jólahlaðborði ISK 25.900* á mann og tilboð í tvær nætur m/morgunmat ISK 29.900* á mann

Ein nótt einn í herbergi Nýja Skála með morgunmat og jólahlaðborði ISK 36.900* Tilboð í tvær nætur m/morgunmat ISK 39.900*

* Gistináttaskattur  bætist við eins og við á.

Fyrir Bókanir og frekari upplýsingar, þá sendu okkur póst á hveravellir@hveravellir.is eða í síma 660 1366

Og svo er það auðvitað matseðillinn:

FORRÉTTIR

Karrýsíld með vorlauk og eplum

Rauðbeðusíld með rauðlauk

Dill og fennel grafinn lax með graflaxsósu

Reyktar andabringur með graskersmauki, trönuberjavinagrette og karamelluðum hnetum

Reyksoðin bleikja með grófkorna sinnepi og kryddjurtum

Grafinn hrossavöðvi með bláberjasósu

Hreindýrapaté með rabbabara og rauðlauks chutney

AÐALRÉTTIR

Purusteik

Kalkúnabringa

Hangikjöt með uppstúf og kartöflum

MEÐLÆTI

Heimalagað rauðkál, grænar baunir, eplasalat

laufabrauð, rúgbrauð, smjör

brúnaðar kartöflur, sætkartöflusalat

Rauðvínssveppasósa

DESSERT

Ris a la mandle með kirsuberjasósu

Súkkulaði og hindberjakaka með vanillurjóma

Appelsínu og kanilkaka með smjörkremi

Hveravellir Christmas Buffet 2024

The annual Christmas Buffet of the notorious Fjalla-Eyvindur and Halla will be held at Hveravellir on Saturday November 30th  and also saturday Desember 7th    2024.

Nothing will be spared to make the event a magical experience in Hveravellir, situated on the high plateau of Iceland.

All the delicacies will be featured such as smoked lamb, herring and rúgbrauð, salmon and assortments from the wild life menu.

For those who have the required 4×4 jeep and do not want to travel alone in the mountains over winter we offer guiding north Kjölur and back. Experienced guides will be going back and forth both days.

We also have the facilities to offer the travel if you don’t have a vehicle suited.

The price is moderate for this experience, and includes the dinner, breakfast and lodging.

One night in dormitory sleeping bag accommodation in Old Hut with breakfast and buffet ISK 21.900 and special offer of ISK 26.900 for 2 nights

Or one night in room for 2 with made up bed in New Hut with breakfast and Christmas Buffet ISK 25.900per person, special offer of 2 nights with breakfast for 2 ISK 29.900

One night for one in room in New Hut with breakfast and Christmas Buffet ISK 36.900, special offer 2 nights with breakfast 39.900 ISK.

Booking and further information, send us an email to hveravellir@hveravellir.is or give us a call on 660-1366.