Helgarferð fyrir minna vana (og meira vana) en ferðaþyrsta jeppagarpa!
Núna helgina 8 – 10 apríl ætlum við á Hveravöllum þá að bjóða upp á leiðsögn inn Kjalveg á föstudegi. Leið verður valin eftir veðri og færð. Annaðhvort bara hefðbunda leið sem fylgir veginum að mestu en ef snjóalög leyfa þá bara beint af augum yfir Kjalhraunið. Á laugardegi verður gert eitthvað eftir veðri og færi, annaðhvort kíkt inn á jökul farið í Kerlingafjöll eða norður fyrir Hofsjökul í Ingólfsskála eða Laugafell ef hægt er. Sunnudagur fer svo í að koma sér heim aftur og þá vonandi suður Langjökul.
Við heimamenn á Hveravöllum munum fylgja hópnum inneftir á minnsta kosti 2 bílum og jafnvel fleirum og svo einnig á laugardeginum og sunnudeginum förum við með út að leika.
Hægt er að velja um gistingu annaðhvort í Gamla Skálanum í svefnpoka-skálagistingu eða þeim Nýja í herbergi með uppábúnu.
Boðið verður upp á súpu og brauð við komu inneftir á föstudag, morgunverðarhlaðborð laugardags og sunnudags morgun þar sem hægt verður að smyrja sér samloku til dagsins líka og svo lamba-ofnrétt eða hina frægu smalaböku Höllu á laugardagskvöldið með hina frægu skyrköku Eyvindar á eftir.
Þetta er auðvitað ferð fyrir breytta bíla sem eru sjálfbjarga í snjó. VHF stöð kostur!
Verðinu er stillt í hóf eins og hægt er:
Í svefnpokaplássi í Gamla Skála kr 23.000 á mann
Í herbergi í Nýja Skála mv 2 í herbergi kr 30.000 á mann
Nánari upplýsingar og bókanir:
Pétur s: 6601366