Naut og Bernaise 2025

Það er komið að því!!

Naut og Bernaise. Fastir liðir eins og venjulega. Eðalmjúk nautalund með háfjalla Bernaise. Humarsúpa með sjávarréttaspjóti og hvítlauksbrauði í forrétt og endum svo á heimagerðum eftirrétt og auðvitað kaffi með.

Veislan verður Laugardaginn 29 mars* en svo verður líka í boði að mæta á föstudeginum og aukanóttin með morgunmat verður á sérstöku tilboði. Þeir sem koma á föstudegi fá  morgunmat á laugardagsmorgni en verða svo reknir út að leika í snjónum fram að kvöldmat. Fyrir þá sem frekar vilja slaka á yfir góðri bók og henda sér svo í pottinn verður það líka í boði.

Veisla og morgunverður.

Verð sem allir ættu að höndla og svo sérstakt glæsitilboð fyrir þá sem vilja aukanóttina á fjöllum.

*Ein nótt svefnpokapláss gamla skála með morgunverði og nautaveislu ISK 24.900 tilboð í tvær nætur m/ morgunverði ISK 29.900

*Ein nótt tveir í herbergi í Nýja Skála með morgunverði og nautaveislu ISK 29.900 á mann tilboð í tvær nætur m/ morgunverði ISK 34.900

*Ein nótt einn í herbergi Nýja Skála með morgunverði og nautaveislu ISK 45.900 Tilboð í tvær nætur m/ morgunverði ISK 51.900

Upplýsingar og bókanir / Bookings and more informations.

info@hveravellir.is

Pétur s: 6601366

P.S Við munum reyna að hafa milligöngu um að koma mönnum í samflot inn eftir ef áhugi verður fyrir hendi.

*P.S .P.S Ennþá pláss laus í Gamla skálanum í veisluna 22 mars